Á þingi IAU í Grenoble 1976 Á myndinni hér fyrir neðan sjást hjónin Cecilia Payne-Gaposchin og eiginmaður hennar, Sergei Gaposchin, ásamt konu minni, Guðnýju. Cecilia varð fyrst til að sýna fram á það, í doktorsritgerð sinni árið 1925, að sól og fastastjörnur væru aðallega úr léttu frumefnunum, vetni og helíni, en ekki efnasamsett líkt og jörðin. Um þessa ritgerð hefur það verið sagt, að hún sé merkasta doktorsritgerð í sögu stjörnufræðinnar. Cecilia lést þremur árum eftir að þessi mynd var tekin, 79 ára að aldri.
|